There are no translations available.

Úr Íslenskri matarhefð eftir Hallgerði Gísladóttur

Steiktan rúsínublóðmör með kanel og eplum bar Hilmar Jónsson matreiðslumeistari fyrir forseta Ítalíu í veislu sem Vigdís Finnbogadóttir hélt honum þarlendis árið 1987.
There are no translations available.

Úr Íslenskri matarhefð eftir Hallgerði Gísladóttur

Allraheilagramessa var kölluð sviðamessa vestra og reyndar víðar. Hún er fyrsta nóvember og þann dag var alsiða að borða mikið af sviðum sem þá voru orðin hæfilega bragðgóð eftir að hafa staðið síðan í sláturtíð. Vestfirðingar orða þetta svo: ,,Sjálfsagt var að eta svið á sauðamessu. Þá var skammtað karlmanni heill sauðarhaus (klofinn) og ,,gangurinn" með, það eru fæturnir fjórir. Kvennmanni svið af veturgömlu eða dilkasvið."
There are no translations available.

Úr Íslenskri matarhefð eftir Hallgerði Gísladóttur

Um miðja 18. öld er kvartað um að konur hafi alveg týnt niður fornum aðferðum við ostagerð.

Heimsóknir

We have 2 guests online

Valmynd

Um félagið
There are no translations available.

matarmoggi 013.jpg

Matur-saga-menning er landsfélag áhugafólks um mat og matarmenningu, stofnað 16. febrúar 2006.

Hlutverk félagsins er að efla þekkingu á íslenskum mat og vekja áhuga á þeim menningararfi sem felst í matarhefðum og matargerð. Félagið hefur staðið fyrir fræðslufundum og uppákomum af ýmsu tagi og kynnt þætti í sögu mataræðis á Íslandi, matargerð, hráefni eða vinnslu.

Markmið félagsins er ekki síst að styðja við og efla rannsóknir, kynningar og þróun á matarhefðum um land allt. Sumarið 2008 gekkst félagið m.a. fyrir ferð í Breiðafjarðarhéruð í samvinnu við Ferðafélag Íslands. Þar var bragðað á krásum héraðsins, rifjaðar upp gamlar uppskriftir og hefðir, jafnframt því sem boðið var upp á nýrri útgáfur af réttum úr breiðfirsku hráefni.

Það var svo haustið 2008 sem félagið stóð að sínum stærsta viðburði en það var sýningin Reykvíska eldhúsið, matur og mannlíf í hundrað ár. Sýningin var haldin í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna og Miðstöð munnlegrar sögu og með tilstyrk og velvilja Reykjavíkurborgar og menntamálanefndar Alþingis.

Söfnun á gömlum uppskriftum frá ólíkum landshlutum og héruðum er ofarlega á óskalista félagsins. Tekið er feginsamlega við ábendingum og upplýsingum frá hverjum þeim sem vill leggja félaginu lið í því efni. Koma má upplýsingum til félagsins og/eða gerast félagi í Matur-saga-menning á heimasíðu félagsins www.matarsetur.is. Einnig má skrifa félaginu bréf á heimilisfangið: Matur-saga-menning, ReykjavíkurAkademían, Hringbraut 121, 107 Reykjavík.