There are no translations available.

Úr Íslenskri matarhefð eftir Hallgerði Gísladóttur

Þegar búið var í strokkinn var betra að ylja rjómann eða hita strokkinn best 12-14 gráða heitur. Áður en hitamælar urðu algengir voru konur naskar við að finna rétta hitann með fingri eða olnboga.
There are no translations available.

Úr Íslenskri matarhefð eftir Hallgerði Gísladóttur

Allraheilagramessa var kölluð sviðamessa vestra og reyndar víðar. Hún er fyrsta nóvember og þann dag var alsiða að borða mikið af sviðum sem þá voru orðin hæfilega bragðgóð eftir að hafa staðið síðan í sláturtíð. Vestfirðingar orða þetta svo: ,,Sjálfsagt var að eta svið á sauðamessu. Þá var skammtað karlmanni heill sauðarhaus (klofinn) og ,,gangurinn" með, það eru fæturnir fjórir. Kvennmanni svið af veturgömlu eða dilkasvið."
There are no translations available.

Úr Íslenskri matarhefð eftir Hallgerði Gísladóttur

Um miðja 18. öld er kvartað um að konur hafi alveg týnt niður fornum aðferðum við ostagerð.
Súkkulaðibitakökur
There are no translations available.

sukkladibitakokur.jpg2 bollar hveiti
1 bolli brætt smjör
3 bollar púðursykur
2 1/2 tsk. lyftiduft
1 1/2 tsk. salt
3 egg
1 1/2 plata suðusúkkulaði

 

Best er að þeyta eggin og púðursykurinn saman þar til að blandan er orðin létt og fyriferðarmikil. Hveitinu, lyftiduftinu og saltinu er hrært varlega saman við eggjablönduna og þvínæst smjörinu og söxuðu súkkulaði bætt í.

Sett með skeið á bökunarplötu og bakaði við 200°c í 5 - 10 mín. Þessar kökur geta runnið heilmikið út.

Það er ekkert því til fyrirstöðu að setja tvær súkkulaðibitakökur saman með ís og ávöxtum og nota sem himneskan eftirrétt.

sukkuladibita.jpg